Um okkur
komum ráðstefnur var stofnað árið 2021. Þó að fyrirtækið sé ungt byggist það á áratugalangri reynslu starfsfólks í ráðstefnuskipulagningu og ráðgjöf á grunni KOM ráðgjafar.
Starfsfólk komum ráðstefna hefur komið að skipulagningu á hinum ýmsu ráðherrafundum, fundum á vegum Norðurskautsráðsins, Vestnorden Travel Mart, evrópsku tannréttingaþingi, alþjóðlegum og norrænum ráðstefnum og fundum, jafnt stórum sem smáum.
KOM ráðgjöf var stofnað 1986 þar sem eitt fyrsta verkefni fyrirtækisins var uppsetning, skipulagning og umsjón með fjölmiðlamiðstöð í Hagaskóla fyrir fréttamenn frá erlendum fjölmiðlum sem sendu fulltrúa sína til landsins vegna leiðtogafundar Gorbachev og Reagan í Höfða árið 1986. Að auki hefur KOM frá upphafi haft umsjón með alþjóðlegu sjávarútvegsráðstefnunni International Groundfish Forum þar sem 300 stjórnendur í sjávarútvegi um allan heim koma saman árlega.
Starfsfólk

sími: 822 1806
helga@komum.is

sími: 897 5559
imma@komum.is

Umsýsla reikninga
fridjon@kom.is